22.5.2009 | 22:11
Breiðablik
Ég átti heima í Kópavoginum í gamla daga og æfði doldið með Breiðablik. Ekkert af því var þó til að hrópa húrra fyrir enda lágu íþróttir ekkert sérlega vel fyrir mér þrátt fyrir góðan vilja. Einhverjar taugar hefur maður samt þó til liðsins, án þess ég viti af hverju og maður gleðst dulítið þegar þeim gengur vel.
En svo áttar maður sig á því að það að halda með Breiðabliki er eins og að binda trúss sitt við alkohólista. Einmitt þegar maður heldur að nú fari þetta að ganga vel, þá fer allt í klessu. Eins og þegar menn tapa leik við FH, sem var sama sem unninn.
Tónlistarspilari
Bækur
Bækur
-
: Empires of the Word. A Language History of the World (ISBN: 0-00-711871-6)
Er enn á náttborðinu en lofar góðu. Hvers vegna meikuðu sum tungumál það jafnvel þrátt f. slappa pólitíska stöðu mælendanna (t.d. m.a. arameiska) en önnur sem höfðu alla burði til stórræða (t.d. germönsku málin á 4-6. öld) skildu nánast engin spor eftir sig. Hvað voru Elamítar að pæla? Klúðruðu Hettítar tækifærinu til að eignast lingua franca 2. árþúsundins f. Kr? Kemur allt í ljós. Hlakka til að lesa þessa. Stjörnugjöf bíður, eðlilega. -
Skemmtileg lesning. sögusviðið er gert all-vel lifandi og atburðarás sett í gott samhengi. Höf. flaggar þó helst til miklu af sjálfum sér í textanum og þegar allt kemur til alls er niðurstaðan á frekar hæpnum forsendum. En bókin er samt þræl-skemmtileg.
: The Night Atilla Died. Solving the Murder of Attila the Hun -
Konungsbók er Skurðgoð með skarð í eyra
: Konungsbók -
Teiknar skegg og gleraugu á glansmyndina af Ágústínusi. Samt með furðu miklu respekti.
: Augustine. A New Biography
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.